|
Bærinn Nauthóll var
reistur um árið 1850. Hann var eitt margra nýbýla, sem risu í nágrenni
Reykjavíkur á þessum tíma. Hann var hjáleiga frá Skildinganesbænum og
stóð við fjölfarinn vegaslóða. Taugaveiki kom upp á bænum í kringum
aldamótin 1900 og hann var brenndur. Tóftir hans sjást enn þá rétt við
flugvallargirðinguna, norðan bílastæðanna.
Í síðari
heimsstyrjöldinni voru miklar herbúðir og umsvif á vegum setuliðsins
umhverfis flugvöllinn. Í Nauthólsvíkinni var aðstaða fyrir sjóflugvélar,
sem voru mikilvægar í orrustunni um Atlantshafið. Þar var m.a. norsk
flugsveit. Minnisvarði um veru hennar hér stendur vestan
þjónustuhússins.
Á árunum eftir styrjöldina komu upp hugmyndir um nýtingu
Nauthólsvíkur sem sjóbaðsstaðar og aðstaðan var bætt en
síðar voru sjóböð bönnuð vegna mengunar. Á
áttunda áratugnum var síðan heiti lækurinn, sem gekk undir ýmsum
nöfnum, vinsæll unz honum var lokað 1985. Þegar hreinsun
strandlengju borgarinnar fór á skrið, kviknuðu hugmyndir um að
endurvekja Nauthólsvík sem sjóbaðstað og framkvæmdir hófust skömmu
síðar. Ströndin var vígð sumarið 2000 og ári síðar var opnuð
þjónustumiðstöð með búningsklefum, baðaðstöðu og veitingasölu (ís,
sælgæti og gosdrykkir). Við ákjósanlegustu aðstæður er hitastig
sjávarlónsins innan grjótgarðanna 18-20°C og pottarnir eru 30-35°C
heitir. Lónið og pottarnir eru hitaðir upp með affallsvatni frá
hitaveitugeymunum í Öskjuhlíð. Þar er vatn, sem hefur verið nýtt
til upphitunar húsa borgarbúa.
Þjónustuhúsið er
tilvalin aðstaða fyrir hlaupara, sem geta valið úr miklum fjölda
hlaupaleiða, s.s. skógarstígum Öskjuhlíðar og meðfram ströndinni til
vesturs og inn Fossvogsdalinn í átt að Elliðavatni.
Ylströndin í
Nauthólsvík
er annar tveggja baðstaða á landinu, sem hefur fengið „Bláfánann”,
alþjóðlega viðurkenningu, sem Landvernd hefur umboð til að veita.
Staðir, sem fá þessa vottun, verða að uppfylla ströng skilyrði um
hreinlæti, vatnsgæði, öryggi, aðbúnað og fræðslu fyrir gesti og
umhverfisvernd. Þess er vænzt, að gestir séu meðvitaðir um gildi og
mikilvægi góðrar umgengni og að staðurinn megi auka umhverfisvitund
þeirra.
Siglingaklúbburinn
Siglunes hefur aðstöðu í Nauthólsvík, austan Ylstrandarinnar. Þar er
hægt að fá leigðar ýmsar gerðir báta á fimmtudögum, allt frá árabátum og
kanóum upp í einfaldari gerðir seglbáta. Einnig er í boði
skemmtisigling í bátnum Jónasi feita.
Sími: 511 6630 |