|
Hraun
stendur neðan hólaþyrpingar, sem myndaðist þegar meginhluti Háafjalls
hljóp fram þvert yfir Öxnadalinn, þannig að þunn fjallsegg með
Hraundranga og fleiri tindum stóð eftir.
Við þessar náttúruhamfarir varð til lægð milli þeirra og
framhlaupsins, þar sem Hraunsvatn er nú (sjá veiðivef).
Hraun
er talinn fæðingarstaður Jónasar Hallgrímssonar (1807-45), skálds
og náttúrufræðings, þótt rök hafi verið færð að því, að
hann hafi fæðzt að Steinsstöðum.
Hann ferðaðist talsvert um landið á árunum 1837 og 1839-42
til að rannsaka náttúruna og safna efni í í Íslandslýsingu fyrir
Hið Íslenzka Bókmenntafélag.
Hann var einn stofnenda tímaritsins Fjölnis, sem birti mörg ljóða
hans og þýðingar.
Hann og Bjarni Thorarensen voru brautryðjendur rómantísku
stefnunnar á Íslandi.
Steinsstaðir eru e.t.v.
fæðingarstaður Jónasar. Sé svo ekki má nefna bæinn
bernskustöðvar hans. Þar er gróðurreitur og
minnisvarði skáldsins.. Ofan bæjar er fossinn
Gljúfrabúi og Brattaskeið, þannig að staðfæra má „Dalvísu”
Jónasar.
Rannveig, systir Jónasar, var gift Stefáni Jónssyni
(1803-1890), bónda að Steinsstöðum og alþingismanni í nær 30
ár. Hann var einhver traustasti fylgismaður Jóns
Sigurðssonar forseta. |