|
Hof er margbýli í Öræfum. Þar var kirkja helguð heilögum Klemensi í katólskum
sið og útkirkja frá Sandfelli allt til 1970, þegar Hof var lagt til Kálfafellsstaðar
í Suðursveit. Torfkirkjan, sem varðveitt er að Hofi, er að stofni frá 1884. Veggir
hennar eru hlaðnir úr grjóti og á henni er helluþak, þakið torfi.
Þjóðminjasafnið fékk hana til eignar með því skilyrði, að hún yrði endurbyggð
(1953-54) og hún yrði áfram sóknarkirkja. Hún var endurvígð 1954.
Jón Jakobsson,
bóndi að Klömbrum undir Eyjafjöllum, endurbyggði kirkjuna 1847 og smíðaði altarið
og líklega hefur Jón Guðmundsson í Lækjarhúsum á Hofi smíðað hurðarlæsinguna
sama árið. Í kirkjunni eru danskir stjakar úr tini frá 16. eða 17. öld. Ólafur
Túbals, listmálari, málaði altaristöfluna. Lækir úr Hofsfjalli voru virkjaðir til
ljósa. Ferðaþjónusta er rekin á Hofsbæjunum og einnig í félagsheimilinu á
sumrin.
Gröf er
eyðibýli skammt norðvestan Hofs. Bærinn var einn margra, sem tók
af í Öræfagosinu 1362 og týndist. Árið 1954 fundust rústir hans og
voru rannsakaðar. Þarna fundust rústir bæjar, fjóss, hlöðu og
sofnhúss, sem gáfu hugmynd um þróun bygginga frá söguöld. Bæði
sofnhús og bæjargöng eru merkileg og líkjast helzt bæjarrústum á
Orkneyjum. Meðal þess, sem fannst, voru nokkrir smámunir og
fjögurra raða, heimaræktað bygg (Hordeum vulgare).
Háalda milli Sandfells og Hofs myndaðist í hlaupinu 1727.
Í henni er geysistórt jökulker (hver) eftir bráðnun
risastórs jaka. Háalda var friðlýst sem náttúruvætti
árið 1975. |