|
Hafnarnes
er eyðibyggð austarlega á suðurströnd Fáskrúðsfjarðar.
Búsetan þar byggðist á útgerð og þorp myndaðist á seinni
hluta 19. aldar á jörðinni Gvendarnes, sem er í eyði.
Flestir urðu íbúar Hafnarness 105 árið 1907 og þarna undi fólkið
hag sínum vel fram í síðari heimstyrjöld.
Þá fór að halla undan fæti og plássið var komið í eyði
árið 1970.
Vitinn
var byggður árið 1912.
Franski spítalinn, sem var byggður á Búðum,
en fluttur til Hafnarness, var nýttur sem húsnæði fyrir
5 fjölskyldur, samkomuhús og barnaskóli um tíma. Árið 2011 var
húsið flutt aftur til Búða, þar sem það var endurnýjað fyrir
tilstuðlan frönsku stjórnarinnar, sem styrkti verkið. |