|
Sýning
Hitaveitu Suðurnesja um jarðfræði, jarðhita og vinnslu orku
úr iðrum jarðar við orkuverið í Svartsengi.
Ísland býður
einstök skilyrði til að sjá og rannsaka flest, sem varðar
jarðfræði, eldvirkni og jarðhita, því að landið er
jarðfræðilega ungt og enn þá í mótun.
Landið er eins og gluggi inn í fortíð og framtíð þessarar
þróunar, þannig að með lestri jarðlaga má leiða líkur að
því, sem koma skal.
Hérlendis eru stærstu jöklar og mestu jökulsár Evrópu, mestu há-
og lághitasvæðin, óvenjulega mikil eld- og
jarðskjálftavirkni auk stórbrotinnar náttúru.
Leikir
sem lærðir njóta sýningarinnar í
Gjánni, sem leiðir gesti um almenna jarðfræði jarðarinnar,
jarðfræði landsins, Reykjaness og Svartsengis og skýrir
tengsl skyldra fræðigreina með forrannsóknum og eftirliti á háhitasvæðum. Jarðboranir
á slíkum svæðum eru einnig skýrðar og farið í gegnum framleiðsluferli
rafmagns og hitaveituvatns í orkuverinu í Svartsengi.
Tæknibúnaður
sýningarinnar er mjög fullkominn.
Unnt er að sýna margar myndir í einu og tengja þær ýmsum
hljóðum samtímis. Myndir
er m.a. sýndar á 42” plasmaskjám og geymdar á stafrænum MPEG
mynd- og hljóðgrunnum. Allar
myndir eru með víðómi. Í
enda Gjárinnar er stærra sýningartjald í hvelfingu.
Það er tengt kvikmyndahljóðkerfi fyrir Dolby-umhverfishljóð,
sem eru geymd á stafrænum hljóðkerfum, og ljósum, sem er stýrt í
samræmi við viðburðina.
Ár
hvert koma þúsundir gesta í Svartsengi til að kynna sér starfsemi
Hitaveitu Suðurnesja. Þarna
eru á ferðinni ferðamenn, skólafólk, fjölskyldur og sérfræðingar
á ýmsum sviðum jarðvísinda. Hitaveitunni
þótti tímabært að skapa aðstöðu til gestamóttöku og veita
nokkra innsýn í undur íslenzkrar náttúru og aðferðirnar, sem er
beitt við breytingu náttúruaflanna í birtu og yl fyrir byggðirnar
á Suðurnesjum.
Eldborg,
kynningar- og mötuneytishús Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi og Gjáin,
eru kjörin vettvangur fyrir þessa kynningu auk kynningar á sögu
Hitaveitunnar, Bláa lónsins og samfélagsins á Suðurnesjum.
Gjáin
er opin á auglýstum tímum hverju sinni en einnig er unnt að panta sérstaka
skoðunartíma.
Eldborg,
Svartsengi
Bláa lónið,
Sími: 420-8800
www.bluelagoon.is
lagoon@bluelagoon.is
|