|
Geithellnar
eða Geithellar eru fornt höfuðból.
Talið er, að þeir fóstbræður Ingólfur Arnarson og Hjörleifur
Hróðmarsson hafi haft þar vetursetu í fyrri ferð sinni til Íslands.
Í túni bæjarins er völvuleiði.
Líklega fékk bærinn nafn af helli í næsta nágrenni, sem er
orðinn fullur af jarðvegi.
Geithellnadalur
er langur og djúpur og skerst inn í hálendið austan og norðaustan
Vatnajökuls. Dalurinn er víða
grösugur og þar var talsverð byggð fyrrum.
Geithellnaá fær mestan hluta vatns síns frá Þrándarjökli.
Hraun er uppþornað gljúfur undan Múla í Áfltafirði.
Þar er talið, að Geithellnaá hafi runnið áður,
Í því er lítil tjörn, sem er kölluð Tröllatjörn.
Þar veiddist silungur áður fyrr og veiðiþjófur einn varð
fyrir óskemmtilegri reynslu, þegar hann reyndi að veiða þar.
Skrímsli í skötulíki réðist á hann og elti, en hann slapp
naumlega. Hann lagði svo
á, að ekki skyldi veiðast branda í tjörninni eftirleiðis og það
þykir hafa rætzt.
Geithellnaá
er víða prýdd fossum og gljúfrum, þar sem hún þrengir sér í
gegnum gljúfur og tröllahlöð. |