|
hiking
trails interior central highlands iceland,
Hálendið
Ferðavísir













Veður og færð
Ástand fjallvega

MATUR OG NÆRING
FYRIR
GÖNGUFÓLK
|
GAUMLISTI
FYRIR GÖNGUFÓLK
Fjöldi
ferðamanna ferðast fótgangandi. Sumir rölta milli
hótela og sundstaða, aðrir verzla á Laugaveginum, en æ
fleiri leggja land undir fót og ganga Laugaveginn milli
Skóga og Landmannalauga.
Þessum orðum er aðallega beint til alvöru göngufólks, sem
ætlar að njóta fegurðar náttúru, sem sýnir á sér margar
hliðar. Hér er ekki átt við stuttar og staðbundnar
gönguleiðir, sem upplýsingamiðstöðvar um allt land eiga í
bæklingum. Margt göngufólk freistast til að bæta degi
eða dögum við ferðir sínar til að njóta áhugaverðs umhverfis
betur. Gerist það, er stundum nauðsynlegt að koma
boðum um tafir til réttra aðila.
Alvarleg slys á gönguleiðum verða ár hvert.
Veðrið getur breytzt með stuttum eða engum fyrirvara.
Oft ofmetur göngufólk getu sína eða vanmetur aðstæður, sem
það hefur ef til vill ekki átt við áður og býst ekki við.
Allur búnaður verður að vera í samræmi við veðurfar og
umhverfi. Stundum eru leiðamerkingar ekki sýnilegar
(undir snjó).
Það er óráðlegt að fara inn í íshella vegna hrunhættu.
Árið 1970 urðu nokkrir göngumenn úti á Fimmvörðuhálsi vegna
þess, hve vanbúnir þeir voru.
Mundu: Göngufólk
skilur aðeins sporin sín eftir og tekur góðar minningar með
heim!
Göngufólk verður að skrá sig í næstu upplýsingamiðstöð áður
en lagt er af stað í gögnuferðir um hálendið!
Upplýsingamiðstöðvar fyrir hálendið
Listi yfir búnað
í 3-4 daga gönguferðir að sumri:
Fatnaður:
Vind- og vatnsþétt föt
Göngubuxur
Ullar- eða flíspeysa
Síðar nærbuxur
Nærskyrtur
Þunnar ullar-eða flíspeysur
Sokkar (2-3 pör)
Vettlingar eða hanzkar
Húfa
Gönguskór
Föt til að fara í eftir göngu
Skór til að vaða læki og ár
Persónulegur búnaður:
Dýna
Svefnpoki
Vatnsflaska
Landakort
Áttaviti /GPS-tæki
!!!
Sameiginlegur búnaður:
Tjald
Prímus og pottar
Eldsneyti fyrir eldunarbúnað
Talstöð, sími (VHF/gervihnattasamband)
Ýmislegt:
Eyrnatappar
Vasaljós
Sólgleraugu
Vindgleraugu
Myndavél
Vasahnífur
Hnífapör
Diskur/skál
Skyndihjálparpakki
Umbúnaður v/hælsæris/fótasára
Sólvarnarkrem og varasalvi
Tannbursti og snyrtivörur
Klósettpappír
Lesefni og/eða iPod (afþreying)
Eldspýtur
Bezt er að reikna með einu kílógrammi af mat daglega og
neyta aðallega þurrfæðu á kvöldin.
Nánar
Áætlaður þungi þessa búnaðar er 15-16 kg.
Séu tveir eða fleiri saman í ferðinni, dreifa þeir vitanlega
sameiginlegum búnaði milli sín. Bakpokinn má ekki vera
svo þungur, að fólk njóti ekki ferðarinnar. Settu
ekkert ónauðsynlegt í bakpokann og gleymdu ekki hinu
nauðsynlega!
 
 |
![[Flag of the United Kingdom]](../images2/england_flag.jpg)
In English
112
Neyðarlínan
1777
Vegagerðin
upplýsingaþjónusta

Garmin fyrir útivistina
|