|
Golf á
Íslandi golfve
GOLF
á ÍSLANDI
Uppruni
golfíþróttarinnar er að mestu hulinn móðu tímans.
Rómverjar léku einhvern svipaðan leik með kylfulöguðum trjágreinum
og boltum fylltum fjöðrum.
Hollendingar stunduðu svipaða íþrótt á frosnum síkjunum
heima hjá sér eins og sjá má í bókarskreytingum frá því um 1500.
Golf var bannað í Skotlandi 1457, því það tók of mikinn tíma
frá æfingum í bogfimi, sem voru nauðsynlegar til
landvarna.
Skotar létu það ekki á sig fá og léku af hjartans lyst í trássi við
veraldleg og geistleg yfirvöld.

Elzti golfvöllur heims, St. Andrews í
Skotlandi, var notaður þegar á 16. öld.
Fyrsta brezka opna golfmótið fór fram í Prestwick í Skotlandi
árið 1860.
Konunglegi Montrealklúbburinn í Kanada var hinn fyrsti, sem var
stofnaður í Norður-Ameríku (1873) og St. Andrewsklúbburinn, einn hinn
elzti í BNA, var stofnaður 1888 í Yonkers.
Bretar og Skotar hafa haldið saman sögu íþróttarinnar og telja
sig upphafsþjóðir hennar.
Íslendingar
hafa leikið golf frá því snemma á fjórða áratugi 20. aldar.
Fyrstu golfklúbbarnir voru GK Íslands (1934), GK
Akureyrar (1935) og GK Vestmannaeyja (1938).
GSÍ var stofnað 1942 og síðan hefur klúbbunum fjölgarð mjög.
Nú eru þeir u.þ.b. 72 í GSÍ. Fjöldi
golfvalla vex stöðugt.
Nú
er bara að kynnast golfvöllunum í kringum landið
með því að beita músinni á viðkomandi landshluta.
|