|
Ferðaþjónustan á Þórisstöðum hefur rekið golfvöllinn
um árabil. 9 holur nú fullgerðar og liggja
þær í einkar fjölbreyttu landslagi. Fjöldi
afþreyinga, veiði og gönguleiðir eru í næsta nágreni og gott
tjaldstæði er við Þórisstaði.
Þegar ekið er frá Reykjavík er hinn fagri Hvalfjörður
sem gengur inn úr Faxaflóa milli Akraness og Kjalarness. Hann er u.þ.b. 30
km langur, 4-5 km breiður og víðast alldjúpur. Mesta dýpi er utan
Kiðafells í Kjós, 84 m. Innarlega kvíslast hann í Laxárvog,
Brynjudalsvog og Botnsvog, sem eru grunnir og þar koma upp leirur á
útfallinu. Innantil við fjörðinn eru fremur sæbrött fjöll, en
undirlendi er talsvert við hann utanverðan. Innanvert ber mest á
Múlafjalli, Hvalfelli, Botnsúlum og Þyrli.
Það er um 20 km. styttra að fara um
Hvalfjarðargöng að Þórisstöðum frá Reykjavík. |