|
Bygging
6 holu golfvallar á landi Efra-Sels við Litlu-Laxá hófst árið 1984 og
samtímis var Golfklúbbur Flúða stofnaður. Trjárækt hefur verið
stunduð þar frá upphafi. Golfskálinn var vígður 1988 og bætt við
hann 1990. Þar er veitingarekstur. Árið 1997 var kúabúskap
hætt og rætt um að bæta við holum, þannig að völlurinn yrði 18 holu.
Framkvæmdir hófust 1999 ásamt skógrækt. Árið 2000 var byrjað að
breyta fjósinu í golfskála, því hinn gamli var orðinn of lítill.
Fjósskálinn var vígður 16. júní 2001 með golfmóti og veizlu.
Samtímis var 18 holu völlurinn vígður. Veturinn 2002-03 var
hafizt handa við aðstöðu fyrir kylfinga í kjallara hússins og ráðgert
æfingasvæði. |