|
Þingeyrarkirkja er í Þingeyrarprestakalli
í Ísafjarðarprófastsdæmi. Prestssetur
hefur verið á Þingeyri frá árinu 1915 og útkirkja á Hrauni.
Núverandi steinkirkja var byggð 1910-1911 eftir teikningum Rögnvaldar
Ólafssonar, húsameistara ríkisins og Dýrfirðings.
Hann réði öllu um gerð hennar og engu hefur verið breytt síðan.
Kirkjan er úr steinsteypu og Rögnvaldur lét hana snúa í
norður-suður til að hún tæki sig betur út frá sjó séð.
Þórarinn B. Þorláksson málaði altaristöfluna (Jesús blessar
börnin; landslag líklega úr Dýraf.), sem var gjöf frá Gramsverzlun eins og lóðin
fyrir kirkjuna, og Ríkharður Jónsson skar út skírnarsáinn.
Skírnarskálin
er forn og fengin úr Sandakirkju auk tveggja ljósastikna frá árinu
1656.. Margir aðrir
gamlir gripir eru úr Sanda- og Hraunskirkjum.
Gréta og Jón Björnsson myndskreyttu og máluðu kirkjuna
1961, m.a. mynd af hl. Nikulási vinstra megin altarsins.
Hægra megin er mynd af Pétri postula.
Halla Haraldsdóttir, glerlistakona, gerði steindu gluggana þrjá
í kórgafli. Svanhildur
Hjartar, móðir Ólafs Ragnars Grímssonar forseta, saumaði fagran
altarisdúk, sem var gefinn kirkjunni.
Móðurafi forsetans, Ólafur Hjartar, var lengi meðhjálpari
í kirkjunni og Ólafur Ragnar fylgdi oft afa sínum til kirkju, því
að hann var að hluta til alinn upp hjá móðurforeldrum sínum.
Eyðibýlið Sandar, fyrrum prestsetur og kirkjustaður sóknarinnar,
er skammt utan og ofan kauptúnsins.
Þar mun hafa verið kirkja allt frá 13. öld.
Yfirsmiður við steypuvinnu núverandi kirkju var Bergsveinn Jóhannesson.
Yfirsmiður var þáverandi hreppstjóri, Jóhannes Ólafsson.
Auk þessara tveggja unnu 6 menn að byggingunni.
Margir lögðu hönd á plóginn að auki án greiðslu og hver
sjómaður á þilskipum gaf einn fisk úr róðri og hver trilla líka
til styrktar nýju kirkjunni. Sóknargjöld voru hækkuð um helming í nokkur ár til að
greiða kostnað. Kirkjubyggingin
kostaði alls kr. 13.460.-. |