|
Tjarnarkirkja er í Breiðabólstaðarprestakalli
í Húavatnsprófastsdæmi. Tjörn er bær, kirkjustaður og fyrrum
prestssetur utarlega á vestanverðu Vatnsnesi. Katólskar kirkjur
þar voru helgaðar Maríu guðsmóður. Fyrrum þjónuðu
Tjarnarprestar þjónuðu hálfkirkju á Illugastöðum og nokkrum
bænhúsum í sókninni og um langan tíma var Kirkjuhvammssókn
útsókn frá Tjörn, þar til hún var færð til
Melstaðarprestakalls árið 1744.
Árið 1851 var Vesturhópssókn
færð til Tjarnar en Tjarnarprestakall var lagt niður 1970 og
sameinað Breiðabólstað. Kirkjan, sem stendur nú á Tjörn, er
steinsteypt með turni og forkirkju og tekur 70-80 manns í sæti.
Hún var byggð á árunum 1930-1940.
Á altaristöflunni er upprisa
Krists eftir Þórarin B. Þorláksson en bróðir hans, séra Jón
Stefán, var prestur á Tjörn í rúmlega 30 ár frá 1872. Meðal
verðmætra bóka kirkjunnar er Nýatestamentið úr Þorláksbiblíu
(1644), alheilt eintak. |