|

Dalakofinn er rétt norðan
Laufafells í nágrenni Reykjadala að Fjallabaki og er sérlega
vel staðsettur í þessari stórkostlegu náttúru. Eigendur
Dalakofans er Stolzenwald fjölskyldan, en Rúdolf Stolzenwald
sem upphaflega byggði skálann árið 1971 var frumkvöðull í
hálendisferðum og ferðaðist mikið á vélsleðum og jeppum um
þetta svæði. Útivist og börn Rúdolfs sem öll eru félagsmenn
í Útivist gerðu með sér samkomulag um endurbyggingu skálans
og lauk þeirri endurgerð 2010.
Fyrir voru tveir A-skálar en Útivist byggði tengibygging á
milli þeirra. Í gömlu skálunum eru svefnrými fyrir 18 manns
í hvorum hluta en í tengibyggingunni er rúmgott eldhús og
borðsalur ásamt salerni sem er virkt yfir sumartímann og
góðri forstofu.
Dalakofinn er sérlega vel staðsettur fyrir hvers konar
ferðalög um Fjallabak. Frá honum er hægt að fara í lengri og
styttri gönguferðir um fjölbreytt jarðhitasvæði og hæfileg
dagsganga er þaðan í fjölda skála á svæðinu. Þá hentar
staðsetning Dalakofans sérlega vel til vetrarferða. Frá
Keldum er jafnan gott að komast í skálann og hvergi þarf að
fara yfir ár. Þegar þangað er komið er hins vegar stutt í
mjög skemmtilegt ferðasvæði um Reykjadali, Krakatindaleið og
Hrafntinnusker svo eitthvað sé nefnt.
GPS Staðsetning skálans er
N 63°57.048‘ W 19°21.584‘
Book online:
 |